28nóvember

Smá breytingar :)

Jæja stúlkur.... ég var núna að reynað gera eitthvað við þessa síðu og henti inn mynd af hverri og einni inn í hverjar eru bruzzurnar.. ef þið eruð eitthvað óánægðar með þær myndir semég valdi.. endilega látið vita og þeim verður breytt.. held þó að þetta sé í góðu lagi.. þar sem þið eru allar svo asskoti myndalegar ;)

Það mætti nú samt einhver fara að blogga svona áður en allir fara í jólafrí :)

XOXO

Þóra Björg :)
28. nóvember 2008 klukkan 00:10
Thelma Björk Snorradóttir
5 athugasemdir
25nóvember

Dramaqueens!!!

Hvers vegna!!!Kiss
 
Maðurinn hafði fundið aðra - svo hin átti að flytja út.
Hún eyddi fyrsta deginum með að pakka öllu niður í kassa.
Næsta dag kom flutningsbíllinn og sótti allt dótið.
Þriðja daginn settist hún við fallega borðstofuborðið í síðasta skipti,
kveikti á kertum, setti góða músik á og borðaði stóran skammt af rækjum,
rússneskum kavíar og drak flösku af Chardonnay.
Þegar hún hafði borðað, gekk hún hringinn í hvert einasta herbergi og tróð
rækjurestum inn í endana á öllum gardinustöngunum !
Þar á eftir gerði hún eldhúsið hreint og yfirgaf húsið.
Þegar maðurinn kom tilbaka í húsið með nýju kærustuna sína, voru fyrstu
dagarnir
ekkert nema gleði og hamingja. En svo byrjaði húsið smám saman að lykta.
Þau prófuðu allt, ryksuguðu, þvoðu, loftuðu út.
Loftræstingin var skoðuð gaumgæfilega kanski voru þar dauðar mýs
og rottur, teppin voru hreinsuð, og ilmpokum og loftfrískandi vörum
var komið fyrir alls staðar.
Meindýravörnin var kölluð til og húsið var "gasað" gegn lyktinni, það þýddi,
að þetta hamingjusama par þurfti að flytja út í nokkra daga.
Að lokum var allt veggfóður rifið af og húsið allt málað vel og vandlega.
Ekkert hjálpaði.
Vinirnir hættu að koma í heimsókn.
Iðnaðarmenn og aðrir starfskraftar gerðu allt til þess að þurfa ekki að
vinna í húsinu.
Húshjálpin sagði upp.
Á þessum tímapunkti gátu þau ekki heldur haldið fnykinn út lengur, svo þau
ákváðu að selja. Mánuði seinna
hafði húsið ekki selst, þrátt fyrir að verðið hafi lækkað um helming.
Sagan gekk, og fasteignasalinn hætti að svara hringingum þeirra.
Að lokum voru þau neydd til að taka stórt bankalán til að kaupa nýtt hús.
Fyrrverandi - eiginkonan hringdi til mannsins og spurði hvernig gengi.
Hann sagði henni söguna um rotna húsið.
Hún hlustaði með mikilli umhyggju og sagði svo að hún saknaði gamla heimilis
síns ógurlega mikið, og hún gæti vel hugsað sér að kaupa húsið aftur.
Maðurinn var viss um að, ex-ið vissi ekkert um hve málið væri slæmt, svo
hann samdi við konuna að selja henni húsið á tíunda-hluta af markaðsverði,
gegn því skilyrði að skrifað yrði undir samdægurs.
Hún samþykkti það.
Viku seinna stóðu maðurinn og kærastan í húsinu í síðasta sinn -
þau hlógu yfir sig hamingjusöm. Og þeim var létt þegar flutningsbíllinn kom
og sótti allt þeirra dót
til að keyra því yfir í nýja húsið.
- þar á meðal gardínustöngunum!!!!

25. nóvember 2008 klukkan 22:35
Sólrún Halla Bjarnadóttir
2 athugasemdir
10október

Föstudagurinn 10. Oktober...!

Við getum ekki sagt annað, en þetta er einhver sú leiðinlegast síða sem við höfum skoðað á ævinni..! Stelpur mínar.. það þarf að fara að gera eitthvað í þessu..! Bara svona vingjarnleg ábending ;)

Langar að koma einu að... EYRÚN ER BÚIN AÐ LOSNA VIÐ GIPSIÐ :) og löppin á henni var eins og á rússneskum hermanni, þeir sem villja sjá.. þá er miðinn ekkert rosalega dýr..!

Ekki hefur verið mikil skemmtum  síðustu daga þar sem tvö próf voru í vikunni, sem auðvitað allir rúlluðu upp með stæl..og verður tekið á því um helgina þar sem Palli mætir í hvíta húsið á laugardaginn og ætlum við nokkrar að skella okkur þangað.. þeir sem vilja með ... endilega látið sjá ykkur :) 

Við stelpurnar skelltum okkur á körfuboltaleik áðan Hamar-Laugdælir.  Strákarnir okkar stóðu sig með príði og var leikurinn mjög spennandi en því miður þurftum við að láta í minni pokann í þetta skiptið, en þetta kemur næst :)

Því miður höfum við ekkert meira að segja að sinni nema það að við kvetjum ykkur stelpur að blogga og gera eitthvað obboslega sniðugt við þessa síðu :)

kveðjum að sinni..

Þóra Björg - Eyrún og                                              Thelma Björk :)






10. október 2008 klukkan 23:06
Thelma Björk Snorradóttir
1 athugasemd
24september

Sćlar Bruzzur!

Vill byrja á að þakka fyrir frábæra kvennaferð, svakalega var gaman ! Hef heyrt að Hvergerðingar hafi ekki séð eins miklar glæsimeyjar þar í bæ svo árum skipti og tala nú ekki annað en bruzzurnar frá vatninu og þeirra undurfögru danshæfileika !!  Spurning um að við gefum út myndband til þess að gleðja æsta aðdáendur.... Skoðum það mál á næsta fundi.
Stákarnir eiga bara hrós skilið fyrir höfðingjalegar móttökur, held að engin okkar hafi búist við þessu ! Bara FLOTTIR  :=)


Svo er spurning um að fjölmenna á söngvakeppnina á morgun, ég veit að okkar fólk á eftir að standa sig með prýði :) Byrjar kl 22:00 í Hvíta húsinu ef það fór framhjá einhverjum.

KV. zzzzzz.... :)
24. september 2008 klukkan 22:23
Íris Indriđadóttir
1 athugasemd
11september

Fyrsta bloggiđ

Jæja gott fólk.....
við BRUZZURNAR hittumst í kvöld heima hjá Örnu, og föndruðum okkar EITURSVÖLU grímubúninga fyrir morgundaginn. Mikil spenna er í loftinu um það hvort að við vinnum ekki pottþétt grímubúningakeppnina miklu :).
Meira um þetta síðar... góða skemmtun á morgun.
..Arna Lind
11. september 2008 klukkan 22:04
Arna Lind Arnórsdóttir
11 athugasemdir

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Klukkan

Myndirnar okkar

Strákarnir okkar

Könnun

komin í jólafílinginn??

Innskráningar kubbur